Einfaldara utanumhald fyrir golfhópa
Golfgátt heldur utan um útimót, hermamót / TrackMan, mótaraðir, safnmót, Draumahringinn, frjálsa holukeppni, einriðla holukeppni, margriðla holukeppni, gestaspilara, uppstillingu umferða, keppnisholl, ritaraskráningu, Mitt skor samanburð, símavæn skorkort, live stöðu, bókanir, tilkynningar, útsláttarholukeppni, Ryder-snið og tölfræði — svo mótsstjórn og leikmenn geti einbeitt sér að golfinu allt árið.
Minni handavinna. Meira golf.
Excel, skilaboð og handavinna eiga ekki að stjórna golfhópnum.
Flestir golfhópar byrja einfalt. Svo fjölgar mótum, skorkortum, bókunum, tilkynningum og reglum. Þá verður utanumhaldið fljótt stærra en leikurinn sjálfur.
- Skor og stöður þarf að uppfæra handvirkt.
- Endanleg keppnisholl eru oft önnur en bókunarhollin og þarf að raða þeim í Excel.
- Mæting í næsta mót týnist í Messenger-þráðum, tölvupóstum og „ég held hann mæti“ skilaboðum.
- Ritari, skorkort og samþykkt úrslita er erfitt að halda utan um á leikdegi.
- Gestaspilarar fylla oft holl en eiga ekki alltaf að telja í heildarkeppni.
- Ósamræmi í skori kemur oft of seint í ljós ef enginn samanburður er á vellinum.
- Bókunarábyrgð rástíma gleymist eða lendir alltaf á sömu aðilum.
- Tilkynningar og stutt skilaboð á leikdegi týnast í skilaboðaþráðum.
- Nýir meðlimir fá ekki skýra yfirsýn yfir mót, reglur og stöðu.
Ekki bara skorkort. Heilt tímabil á einum stað.
Golfgátt heldur utan um golfhópinn frá fyrstu mætingarbeiðni tímabilsins til lokaúrslita síðasta mótsins. Hópurinn fær sitt eigið svæði þar sem mótsstjórn, leikmenn, mæting, skorkort, live-staða, leikdagsspjall, áhorfenda-linkar, holl, gestir, holukeppni, safnmót og stöður vinna saman.
Undirbúningur
Settu upp hópinn, leikmenn, velli, teiga, mótaskrá, reglur og hlutverk mótsstjórnar.
Leikdagur
Sendu mætingarbeiðni, sjáðu hverjir mæta, raðaðu í keppnisholl, bættu við gestum og sendu rétt skorkort á leikmenn eða ritara.
Á vellinum
Leikmenn skrá skor í síma, sjá live-stöðu, fá skýra staðfestingu á skráðu skori og geta fylgst með leikdagsspjalli án þess að allir þurfi sérstakt app.
Eftir hring
Golfgátt fylgist með ókláruðum skorkortum, reiknar stöður og heldur utan um úrslit, safnmót, bókunarskyldur, draumahringi og sögu tímabilsins.
Eigið hópasvæði
Hópurinn fær sitt svæði undir golfgatt.is með mótum, leikmönnum, skorkortum, stöðum, hollum, upplýsingum og sögu.
Mótaskrá og mótaraðir
Stofnaðu punktamót, mótaraðir, hermamót, holukeppnir, riðlakeppnir, útsláttarkeppnir og safnmót yfir tímabilið.
Símavæn skorkort og live-staða
Skorkort opnast með öruggum hlekk í síma. Leikmaður eða ritari skráir skor og sér live-stöðu án langrar leitunar.
Leikdagsspjall á skorkortinu
Mótsstjórn og leikmenn geta sent stutt skilaboð á leikdegi, til dæmis um hreyfingar á brautum, seinkanir eða áminningu um að skila skorkorti.
Mæting án Messenger-rugls
Mótsstjórn getur sent leikmönnum mætingarbeiðni fyrir næsta mót. Leikmenn svara með einum smelli og Golfgátt heldur utan um hverjir mæta, komast ekki eða eiga eftir að svara.
Rétt holl frá réttri mætingu
Þegar kemur að því að raða í holl sér mótsstjórn betur hverjir eru raunverulega að spila. Það minnkar líkur á röngum uppstillingum, endurraðunum og skorkortum sem fara á ranga leikmenn.
Minna Excel, minni handavinna
Kerfið heldur utan um raunveruleg holl, mætingu, gestaspilara, ókláruð skorkort, ítrekanir, stöður og úrslit svo mótsstjórn sleppi við endalausa handavinnu.
Leikdagurinn er orðinn skýrari, lifandi og þægilegri.
Við þróum Golfgátt með íslenskum golfhópum. Nýjustu viðbæturnar hjálpa mótsstjórn að undirbúa leikdaginn betur og gera upplifun leikmanna einfaldari á vellinum.
Mætingarbeiðnir
Leikmenn staðfesta með einum smelli hvort þeir mæta eða komast ekki. Mótsstjórn sér stöðuna áður en raðað er í holl.
Live-linkur fyrir þá sem komast ekki
Þeir sem komast ekki geta samt fylgst með stöðunni hjá félögunum með öruggum hlekk á live-stöðu mótsins.
Leikdagsspjall
Stutt skilaboð og tilkynningar eru á sama stað og skorkortið, til dæmis um hreyfingar á brautum eða seinkun á rástíma.
Skýr holukeppnisforgjöf
Golfgátt sýnir vallarforgjöf, forgjafamun og hvaða holur leikmaður fær forgjöf á. Minni reikningur á fyrsta teig.
Betra mobile skorkort
Símavænt skorkort með hraðri skráningu, skýrri staðfestingu á skráðu skori, Live-hnappi og betri leiðsögn eftir skorkortaskil.
Leikmannasýn og mótsstjórnarsýn
Þeir sem eru bæði leikmenn og í mótsstjórn geta skipt milli hreinnar leikmannasýnar og vinnusýnar fyrir mótsstjórn.
Mínar bókunarskyldur
Leikmaður sér skýrt hvaða daga hann á að bóka rástíma fyrir hópinn, í stað þess að leita í löngu bókunarplani.
Hugmyndatorg
Leikmenn og mótsstjórn geta sent inn hugmyndir, kosið um þær og fylgst með hvað er í skoðun eða komið í Golfgátt.
Fyrirtækjamót
Golfgátt heldur utan um fyrirtækjamót og boðsmót með skorkortum í síma, live-stöðu, úrslitum og sérmerktum skorkortum með logo og sponsor-kubbum.
Eitt stafrænt heimili fyrir golfhópinn.
Golfgátt sameinar leikmenn, útimót, hermamót / TrackMan, mætingarbeiðnir, áhorfenda-linka, skorkort, keppnisholl, ritaraskráningu, gestaspilara, safnmót, holukeppni með skýrri forgjöf, bókanir, fyrirtækjamót, leikdagsspjall, Hugmyndatorg, Ryder-keppnir, útsláttarholukeppni, stöður, tölfræði og Golfgátt Torg á einum stað.
Einriðla holukeppni / allir á móti öllum
Raða umferð 2.0
Frjáls, einriðla og margriðla holukeppni
Veldu leikformið sem passar
Leikmenn
Aðgangur, prófíll, GSÍ-forgjöf, TrackMan-forgjöf, GSÍ-aðildarnúmer og réttindi.
Mót og mótaraðir
Útigolf, hermamót, 18 holur, fyrri 9, seinni 9, 9 holur og 2x9.
Vellir og Vallarbanki
Vellirnir mínir, leit í Vallarbankanum, flokkun eftir landi og innflutningur í hópinn.
9 holur og 2×9
Stofna mót sem 18 holur, fyrri 9, seinni 9, 9 holur eða 2x9 á 9 holu velli.
Hermamót / TrackMan
Merkja mót sem hermamót, velja TrackMan-forgjöf og halda utan um vetrarstarfið.
Símavænt skorkort
Leikmaður eða ritari opnar rétt skorkort beint úr tölvupósti, skráir högg og pútt með +/− og vistar drög á vellinum.
Bókunarholl
Bókunarhópar, hvíldarregla og bókunarpóstar fyrir rástíma - aðskilið frá endanlegum keppnishollum.
Keppnisholl
Mótsstjórn raðar endanlegum keppnishollum með drag-and-drop, setur rástíma og vistar uppstillingu.
Mætingarbeiðnir
Sendu leikmönnum einfaldan magic-link þar sem þeir staðfesta hvort þeir mæta í næsta mót eða umferð.
Hugmyndatorg
Leikmenn og mótsstjórn geta sent inn hugmyndir og kosið um næstu þróun Golfgáttar.
Fyrir golfhópa, fyrirtækjamót og stærri viðburði.
Golfgátt nýtist best þar sem þarf að halda utan um leikmenn, rástímaholl, skorkort, live-stöðu og úrslit án Excel-vesens eða pappírsskorkorta.
Golfhópar
Vikuleg spil, holl, rástímar, mótaraðir, riðlakeppni, safnmót og innri samskipti.
Fyrirtækjamót
Boðsmót, starfsmannamót og sponsor-mót með skorkortum í síma, live-stöðu, úrslitum og sérmerkingu fyrirtækis.
Stærri uppsetningar
Fleiri hópar, sérmerking, undirhópar og stafrænt utanumhald fyrir stærri félagseiningar.
Gerðu fyrirtækjamótið einfaldara, faglegra og skemmtilegra.
Golfgátt heldur utan um fyrirtækjamót, boðsmót og starfsmannamót frá rástímum til lokaúrslita. Þátttakendur fá skorkort í símann, mótsstjórn sér live-stöðu og úrslitin liggja fyrir án þess að safna saman pappírsskorkortum eftir hring.
Mótið getur verið sérmerkt fyrirtækinu með logo, litum og sponsor-kubbum á skorkorti, live-stöðu og kynningu mótsins.
- Þátttakendur fá einfaldan skorkortshlekk í símann.
- Mótsstjórn sér live-stöðu og úrslit án pappírsskorkorta.
- Punktakeppni með forgjöf eða einfalt leikform eftir þörfum.
- Logo fyrirtækis, litir og sponsor-kubbar á skorkorti og live-stöðu.
- Leikdagsspjall fyrir tilkynningar, reglur dagsins og stutt skilaboð.
- Engin þörf á tengingu við GolfBox þegar um er að ræða boðs- eða viðburðarmót.
Engin pappírsskorkort. Meiri upplifun.
Golfgátt gerir fyrirtækjamótið snyrtilegra í framkvæmd: þátttakendur nota símann, staðan uppfærist live og fyrirtækið fær faglega sýnileika á leikdeginum.
Fá tilboð í fyrirtækjamót
Kerfið reiknar með leiknum.
Golfgátt styður venjuleg mót, mótaraðir, riðla, holukeppni og útsláttarholukeppni. Skorkort eru símavæn, geta verið skráð af leikmanni eða ritara og taka mið af teigum, kyni, Course Rating, Slope, pari og forgjafarröð.
- Punktakeppni með Stableford-útreikningi.
- Mótaröð þar sem bestu hringir telja.
- Holukeppni með úrslitum, stöðu og stigagjöf.
- Leikmenn geta skráð skor í síma á meðan þeir spila.
- Ritari getur skráð skor annars leikmanns og leikmaður samþykkt það eftir hring.
- Stjórnendur geta skráð, leiðrétt, enduropnað eða fylgst með stöðu skorkorta.
Skorkort í símanum, án óþarfa innskráningar á vellinum.
Leikmaður eða ritari getur fengið öruggan skorkortshlekk í tölvupósti, opnað rétt skorkort beint í símanum og skráð högg og pútt með einföldum + og − hnöppum.
- Beinn hlekkur á rétt skorkort úr tölvupósti.
- Símavænt skorkort sem hentar á meðan leikmaður er á vellinum.
- + og − fyrir högg og pútt, með takmörkunum sem hjálpa til við rétta skráningu.
- Skorkort vistast sem drög þegar högg eða pútt eru skráð.
- Live staða sýnir holur, punkta, högg og net þegar skorkort vistast.
- Í ritara-flæði getur leikmaður skráð Mitt skor til samanburðar við ritara.
Opna. Skrá. Vista.
Leikmaður eða ritari smellir á skorkortshlekk, skráir högg og pútt í símanum og getur fylgst með stöðunni á sama stað.
Staða sem fylgir leiknum
Þegar skorkort vistast uppfærist staða mótsins og mótsstjórn sér hvaða skorkort eru í vinnslu, staðfest eða bíða samþykktar.
Keppnisholl, drag-and-drop og ritaraskráning.
Bókunarholl eru oft bara fráteknir rástímar. Þegar endanlega er ljóst hverjir mæta getur mótsstjórn raðað leikmönnum í raunveruleg keppnisholl, úthlutað riturum og sent skorkort þegar uppstillingin er tilbúin.
- Drag-and-drop uppstilling leikmanna í keppnisholl.
- Sjálfvirk skipting í 2, 3 eða 4 manna holl.
- Rástími á hvert holl.
- Sjálfvirk ritaraúthlutun innan holls, með möguleika á handvirkri breytingu.
- Ritari skráir skor annars leikmanns, sér eigið skor og staðfestir sem ritari.
- Leikmaður yfirfer og samþykkir skorið áður en það telst endanlegt.
- Gestaspilarar geta verið settir beint inn í keppnisholl án fulls hópaðgangs.
Keppnisholl án Excel
Mótsstjórn dregur leikmenn á milli holla, setur rástíma og vistar uppstillinguna á einum stað.
Ritari og samþykkt
Skorkort fara á ritara þegar það á við. Leikmaður fær svo yfirferðarlink og samþykkir skorið sitt.
Örugg útsending
Ef ritara-flæði er virkt sendir kerfið ekki skorkort sjálfvirkt fyrr en mótsstjórn hefur klárað röðun og sent þau handvirkt.
Gestir í hollið
Vantar einn í hollið? Bættu gestaspilara við, dragðu hann í hollið og veldu hvort hann telji með eða sé utan keppni.
Safnmót, Draumahringurinn, holukeppni og ritarar.
Golfgátt er nú enn nær raunverulegu mótahaldi golfhópa: tímabilsstig, lausir leikir, gestir sem fylla holl og samanburður á skori strax á vellinum.
- Safnmót safnar punktum yfir tímabil og lætur bestu X úrslit telja. Draumahringurinn heldur utan um besta skor leikmanns á hverri holu.
- Frjáls holukeppni leyfir mótsstjórn að velja leiki handvirkt.
- Einriðla holukeppni lætur alla keppa við alla.
- Margriðla holukeppni skiptir leikmönnum í tvo eða fleiri riðla.
- Gestaspilarar geta fengið skorkort og verið í holli án fulls hópaðgangs.
- Mitt skor lætur ritara skrá eigið viðmiðunarskor og varar við ósamræmi.
Safnmót yfir tímabil
Veldu hversu mörg bestu úrslit telja og láttu kerfið reikna safnmeistara sjálfkrafa.
Frjáls holukeppni
Mótsstjórn velur leiki handvirkt þegar hópurinn vill ekki sjálfvirka riðla eða bracket.
Einriðla holukeppni
Einn riðill þar sem allir mæta öllum og kerfið heldur utan um stöðu og úrslit.
Margriðla holukeppni
Leikmenn skiptast í riðla og spila innan síns riðils, með uppstillingu umferða og rástímahollum.
Mitt skor
Ósamræmi milli leikmanns og ritara kemur upp á meðan allir muna enn holuna.
Fuglameistari, pútttölfræði og púttsektir.
Golfhópar elska stöðutöflur. Golfgátt safnar fuglum sjálfkrafa og getur haldið utan um pútt, 3+ pútt og innri púttsektir.
- Fuglar reiknast sjálfkrafa út frá pari og höggi.
- Fuglameistari ársins sýnir hver fékk flesta fugla og á hvaða móti.
- Púttskráning er valkvæð per mót.
- Pútttölfræði sýnir heildarpútt, meðal pútt og fjölda 1-, 2-, 3- og 4+ pútta.
- Púttsektir fyrir 3+ pútt með upphæð, hámarki og uppgjöri.
Fuglameistari ársins
Golfgátt sýnir leikmann, mót, völl, holu, par og skor fyrir hvern fugl.
Púttsektir
Skuldir pr hring, samtals óuppgert og hnappur fyrir mótsstjórn til að merkja uppgert.
Útigolf á sumrin. Hermamót / TrackMan yfir veturinn.
Golfgátt styður bæði hefðbundin útimót og hermamót í golfhermum. Skráðu GSÍ-forgjöf og TrackMan-forgjöf á leikmenn og veldu rétta forgjöf fyrir hvert mót.
- Leikmaður getur haft bæði GSÍ-forgjöf og TrackMan-forgjöf.
- Mót er merkt sem Útigolf eða Hermamót / TrackMan.
- Mótsstjórn velur GSÍ-forgjöf, TrackMan-forgjöf eða enga forgjöf.
- Notuð forgjöf vistast á skorkortinu þegar mótið er stofnað.
- CSV innlestur styður bæði gsi_forgjof og trackman_forgjof.
TrackMan-forgjöf
Hentar vetrarmótum og deildum í golfhermum þar sem hópur notar TrackMan-forgjöf.
Hermamót
Golfgátt verður þannig allt-árs kerfi fyrir hópinn, ekki bara sumarkerfi.
Vallarbanki, 9 holur, 2x9 og sveigjanleg skorkort.
Golfgátt er ekki læst við klassískt 18 holu mót. Hópar geta sótt velli úr Vallarbankanum, skráð 9 holu velli og valið hvaða holur eru spilaðar í hverju móti.
- Vellirnir mínir sýna þá velli sem tilheyra hverjum golfhópi.
- Vallarbankinn er leitanlegur og flokkaður eftir landi.
- Mót geta verið 18 holur, fyrri 9, seinni 9, 9 holur eða 2x9.
- Skorkort og útreikningar sýna aðeins þær holur sem eru spilaðar.
Vallarbanki
Sækja völl í hópinn, sía eftir landi og byggja upp vallarlista sem hentar hópnum.
9/18 holu mót
Fullt mót, fyrri 9, seinni 9 eða 2x9 fyrir 9 holu velli.
Rástímaábyrgð sem virkar í raunveruleikanum.
Golfhópar eru sjaldan nákvæmlega margfeldi af fjórum. Golfgátt styður bókunarhópa þar sem ábyrgðin helst á öllum, en heldur bókunarhollum aðskildum frá endanlegum keppnishollum.
- Setja upp hópa eins og 4 / 4 / 5.
- Hámarka fjölda sem spilar úr holli, t.d. 4.
- Hvíldarregla lætur einn úr 5 manna holli sitja hjá eftir röð.
- Bókunarpóstar minna ábyrgðarmann á að ná rástíma.
- Keppnisholl eru síðan sett upp sérstaklega þegar endanleg mæting liggur fyrir.
4 / 4 / 5 án Excel
Kerfið heldur utan um hver spilar, hver situr hjá og hver ber bókunarábyrgðina.
Útsláttarholukeppni með sjálfvirku bracketi.
Fyrir bikar, sumarholukeppni eða vetrarholukeppni þar sem tveir og tveir keppa og sigurvegari færist áfram þar til einn stendur eftir.
- Handahófsröðun eða röðun eftir leikforgjöf.
- Fríseta / bye ef fjöldi leikmanna passar ekki nákvæmlega í bracket.
- Forgjafarhögg reiknast út frá mismun á leikforgjöf og dreifast á SI holur.
- Skrá má einföld úrslit eða holu-fyrir-holu stöðu.
- Sigurvegari færist sjálfkrafa í næstu umferð.
Bracket án Excel
Golfgátt býr til umferðir, frísetur og næstu leiki. Mótsstjórn þarf ekki að handfæra sigurvegara.
Forgjöf eftir SI
Mismunur á leikforgjöf dreifist á réttar holur samkvæmt forgjafarröð skorkortsins.
Liðakeppni / Ryder-snið sem golfhópar vilja nota.
Golfgátt styður nú liðakeppni með tveimur liðum, blönduðu leikjaplani og live stöðu. Hópur getur spilað klassíska Ryder-keppni þar sem mismunandi holl spila mismunandi leikform.
- Einmenningur, Four-ball / betri bolti og Foursome / alternate shot í sömu keppni.
- Blandað leikjaplan per holl, rástíma eða leik.
- Holu-fyrir-holu skráning og live match status.
- Heildarstaða liðanna reiknast sjálfkrafa: sigur 1 stig, jafntefli 0,5 stig.
- Hægt að tengja liðakeppni við samþykkta áskorun á Keppnistorgi.
Blandað leikjaplan
Dæmi: Holl 1 spilar Einmenning, Holl 2 Foursome og Holl 3 Four-ball — allt telur í sömu stöðu.
Live Ryder-staða
Mótsstjórn skráir holustöðu og Golfgátt sýnir hver er up/down og heildarstöðu liðanna.
Torg golfhópanna og fyrstu áskoranir milli hópa.
Golfgátt getur orðið meira en innra utanumhald. Með Torginu geta golfhópar kynnt sig, fundið aðra hópa og tekið fyrstu skrefin í keppnum milli hópa.
- Hópar geta birt prófíl með logo, lýsingu, staðsetningu og heimavelli.
- Mótsstjórn stillir Torgið beint á félagssvæðinu, neðst á Torg-síðunni.
- Hópar geta valið hvort þeir taki við áskorunum frá öðrum hópum.
- Keppnistorg styður fyrstu útgáfu af áskorunum: senda, samþykkja eða hafna.
- Næsta skref er að tengja samþykktar áskoranir við sameiginleg mót og stöðu.
Golfgátt Torg
Hópar verða sýnilegir á sameiginlegu torgi, án þess að leikmenn þurfi að vera skráðir í aðra hópa.
Keppnistorg
Hópur getur skorað á annan hóp í keppni, jafnvel þó hóparnir spili á mismunandi völlum.
Létt innleiðing. Skýr ábyrgð.
Golfgátt sér um tæknilega uppsetningu, hýsingu, uppfærslur og rekstur. Stjórnandi hóps sér um daglegt innihald.
Uppsetning
Nafn hóps, logo, lén eða undirlén og grunnstillingar.
Gögn
Leikmenn, vellir, teigar, riðlar og mótaform.
Prófun
Fyrsta mót eða mótaröð keyrð með litlum hópi.
Opnun
Leikmenn fá aðgang, leiðbeiningar og stuðning.
Pakkar eftir stærð og þörfum.
Golfgátt er eitt heildarkerfi þar sem virkni opnast eftir pakka. Flestir virkir golfhópar velja Golfhópur Plús.
Golfhópur
Fyrir golfhópa sem vilja einfalt, traust og símavænt utanumhald um leikmenn, velli, mót, skorkort og stöðu.
- Lokað félagssvæði
- Leikmenn og prófílar
- CSV innlestur leikmanna
- Vellirnir mínir og innflutningur úr Vallarbankanum
- Vellir skráðir sem 18 holu eða 9 holu vellir
- Mót yfir 18 holur, fyrri 9, seinni 9, 9 holur eða 2x9
- Mætingarbeiðnir fyrir næsta leikdag
- Leikdagsspjall á skorkorti
- Live-linkur fyrir þá sem komast ekki
- Símavænt skorkort með beinum skorkortslink
- Gestaspilarar utan keppni í einstökum umferðum
- Staða og úrslit
- Tölfræði og Fuglameistari ársins
- Tilkynningar
- Leiðbeiningar
- Sýnileiki á Golfgátt Torgi
Golfhópur Plús
Fyrir virka golfhópa sem spila reglulega, halda mótaraðir, nota bókanir og vilja öfluga mótastjórn allt árið.
- Allt í Golfhópur
- Mótaraðir, bestu hringir og safnmót
- Safnmót þar sem bestu X úrslit telja
- Hermamót / TrackMan
- TrackMan-forgjöf á leikmenn
- Bókunarhópar, 4/4/5 uppsetning og hvíldarregla
- Bókunarpóstar og rástímaábyrgð
- Riðlakeppni / holukeppni
- Frjáls holukeppni án riðla
- Útsláttarholukeppni með bracket og frísetu
- Liðakeppni / Ryder-snið
- Blandað leikjaplan: Einmenningur, Four-ball og Foursome
- Holu-fyrir-holu live staða í liðakeppni
- Skorkortspóstur á mótsdegi
- Mætingarpóstar fyrir næsta mót eða umferð
- Leikdagsspjall fyrir skilaboð til allra í leikdeginum
- Keppnisholl með drag-and-drop
- Sjálfvirk ritaraúthlutun og handvirk breyting
- Ritari skráir skor og leikmaður samþykkir
- Mitt skor samanburður hjá ritara
- Handvirk útsending ritaraskorkorta þegar uppstilling er endanleg
- Púttskráning, pútttölfræði og púttsektir
- Gestaspilarar í keppnishollum
- Golfgátt Torg og áskoranir milli hópa
- Sjálfvirkar skorkorts- og bókunaráminningar
- Leikmannasýn og mótsstjórnarsýn
- Hóparnir mínir
Fyrirtækjamót / boðsmót
Fyrir fyrirtæki sem halda golfmót, boðsmót eða starfsmannamót og vilja faglega upplifun án pappírsskorkorta.
- Stafræn uppsetning fyrir stakt mót eða viðburð
- Rástímaholl og þátttakendalisti
- Skorkort í síma með öruggum hlekk
- Punktakeppni með forgjöf eða einfalt leikform eftir þörfum
- Live-staða og úrslit á leikdegi
- Mótsmerking með logo fyrirtækis
- Sponsor-kubbur / auglýsing á skorkorti undirbúið
- Leikdagsspjall og tilkynningar til þátttakenda
- Gestir og boðsgestir án sérstakrar Golfgátt-aðildar
- Aðstoð við uppsetningu og framkvæmd
Golfvöllur / Golfklúbbur
Fyrir golfklúbba, golfvelli og stærri félagseiningar sem vilja fleiri hópa, sérmerkingu og stærri uppsetningu.
- Allt í Golfhópur Plús
- Fleiri hópar / undirhópar
- Sérmerkt svæði og möguleiki á eigin léni
- Vallarbanki með flokkun eftir landi
- Vellir á Íslandi og erlendis
- 9 holu vellir, 2x9 og 18 holu samsetningar
- Hermamót, vetrardeildir, útsláttarholukeppnir og stærri liðakeppnir
- Keppnisholl, mætingarbeiðnir, leikdagsspjall, ritaraskráning, safnmót, gestaspilarar og samþykktarflæði fyrir formlegri mót
- Tölfræði, pútt og ársyfirlit fyrir stærri hópa
- Skýrslur og útflutningur undirbúið
- Forgangsþjónusta
- Sérsniðin innleiðing
Golfgátt er heimavöllur hópsins.
Golf GameBook og önnur golföpp eru mjög góð fyrir skorkort, live-stöðu, GPS og persónulega golfupplifun. Golfgátt er hins vegar byggð sérstaklega fyrir íslenska golfhópa sem vilja halda utan um hópinn, reglurnar og allt tímabilið á eigin svæði.
- Golfgátt heldur utan um leikmenn, mótaskrá, mætingu, holl, skorkort, gesti, stöður og úrslit yfir tímabilið.
- Mótsstjórn getur sent mætingarbeiðni fyrir næsta spiladag, séð hverjir mæta og sent live-link á þá sem komast ekki.
- Leikdagsspjall á skorkortinu heldur stuttum skilaboðum, tilkynningum og léttu spjalli inni í leikdeginum í stað þess að dreifast um Messenger-þræði.
- Mótsstjórn getur raðað raunverulegum keppnishollum, sent skorkort, fylgt eftir ókláruðum skorkortum og leiðrétt þegar þarf.
- Holukeppni, riðlakeppni og safnmót geta gengið saman, með skýrri birtingu á forgjöf og forgjafarholum í holukeppni.
- Leikmenn þurfa ekki allir að sækja app; skorkort og yfirferðarskorkort geta opnast með öruggum hlekk í síma.
Golfgátt þarf ekki að útiloka önnur golföpp. Hún verður opinbera utanumhaldskerfi hópsins — og getur líka nýst sem stafrænt mótakerfi fyrir fyrirtækja- og boðsmót.
Stutt svör við því sem fólk spyr fyrst.
Hvernig heldur Golfgátt utan um golfhópinn yfir allt tímabilið?
Golfgátt heldur utan um meira en stakan golfhring. Kerfið er byggt fyrir golfhópa sem spila reglulega yfir tímabilið og þurfa að halda utan um leikmenn, mót, holl, skorkort, stöður og úrslit.
Í Golfgátt fær hver hópur eigið svæði þar sem mótsstjórn getur stofnað mót, valið þátttakendur, raðað í rástímaholl, sent skorkort, fylgst með ókláruðum skorkortum og birt stöður fyrir leikmenn.
Golfgátt er því ekki bara skorkort - Golfgátt er mótakerfi og félagssvæði fyrir hópinn.
Getur Golfgátt verið notuð fyrir fyrirtækjamót og boðsmót?
Já. Golfgátt hentar vel fyrir fyrirtæki sem halda golfmót, boðsmót eða starfsmannamót þar sem markmiðið er einföld framkvæmd, skemmtileg upplifun og skýr úrslit.
Þátttakendur geta fengið skorkort í síma, mótsstjórn getur raðað í holl, fylgst með live-stöðu og birt úrslit án þess að safna saman pappírsskorkortum eftir hring.
Mótið getur líka verið merkt fyrirtækinu með logo, litum og sponsor-kubbum á skorkorti og live-stöðu.
Þarf fyrirtækjamót í Golfgátt að tengjast GolfBox?
Nei. Fyrirtækjamót í Golfgátt eru hugsuð sem viðburðarmót og þurfa ekki að tengjast forgjafarskráningu eða GolfBox.
Þetta hentar sérstaklega vel fyrir boðsmót, starfsmannamót og fyrirtækjaviðburði þar sem áherslan er á stafrænt skorkort, live-stöðu, faglegt útlit og minni handavinnu fyrir mótsstjórn.
Getum við haft logo eða auglýsingu fyrirtækisins á skorkortinu?
Já. Fyrirtækjamót geta verið sérmerkt með logo fyrirtækis og sponsor-kubbum á skorkorti, live-stöðu og í kynningu mótsins.
Þetta gerir mótið faglegra fyrir þátttakendur og gefur fyrirtækinu eða samstarfsaðilum sýnileika á meðan leikdagurinn stendur yfir.
Hvað fær hópurinn á eigin Golfgátt-svæði?
Hópurinn fær sitt eigið svæði undir golfgatt.is með leikmannalista, mótaskrá, rástímahollum, mætingarbeiðnum, skorkortum, live-stöðu, holukeppni, safnmóti, punktakeppnum, gestaspilurum, ritaraskráningu, tölfræði og upplýsingum frá mótsstjórn.
Markmiðið er einfalt: minna Excel, minni handavinna og skýrari upplifun fyrir bæði mótsstjórn og leikmenn.
Geta leikmenn staðfest mætingu fyrir næsta mót?
Já. Mótsstjórn getur sent leikmönnum mætingarbeiðni með öruggum hlekk þar sem þeir staðfesta hvort þeir mæta eða komast ekki.
Golfgátt heldur utan um svörin og sýnir mótsstjórn hverjir mæta, hverjir komast ekki og hverjir eiga eftir að svara. Þegar raðað er í holl þarf mótsstjórn því ekki að telja saman „mæti“ og „kemst ekki“ í Messenger-þráðum eða týndum tölvupóstum.
Þetta gerir undirbúning fyrir næsta spiladag skýrari og minnkar líkurnar á röngum hollum eða skorkortum sem fara á leikmenn sem mæta ekki.
Er hægt að senda skilaboð til allra sem eru að spila á leikdegi?
Já. Golfgátt er með létt leikdagsspjall beint á skorkortinu. Þar geta mótsstjórn og leikmenn sent stutt skilaboð sem tengjast leikdeginum, til dæmis um hreyfingar á brautum, seinkun á rástíma, áminningu um að skila skorkorti eða einfaldlega hrós og létt spjall á hringnum.
Spjallið er ekki hugsað sem nýr Messenger, heldur sem einföld leið til að hafa leikdagsskilaboð á sama stað og skorkortið. Það opnast með litlum hnappi og sýnir merki ef ný skilaboð eru komin.
Geta leikmenn fylgst með þó þeir komist ekki?
Já. Ef leikmaður kemst ekki á leikdag getur mótsstjórn sent honum live-link þar sem hann getur fylgst með stöðunni hjá félögunum.
Live-staðan opnar þegar mótið eða umferðin er komin af stað og uppfærist á meðan skorkort eru skráð. Þetta er góð leið fyrir þá sem komast ekki að vera samt hluti af leikdeginum.
Sýnir Golfgátt forgjafamun í holukeppni?
Já. Í holukeppni getur skorkortið sýnt vallarforgjöf beggja leikmanna, hver fær forgjafarhögg og á hvaða holum þau högg eiga við.
Þannig þurfa leikmenn ekki að standa á fyrsta teig og reikna sjálfir hver fær hvað. Golfgátt setur þetta fram á skýru máli beint á skorkortinu.
Hvar vinnur mótsstjórn með mótin?
Mótsstjórn vinnur með mótin á félagssvæði hópsins. Þar er hægt að stofna mót, senda mætingarbeiðnir, raða í holl, senda skorkort, fylgjast með ókláruðum skorkortum og sjá stöður og úrslit.
Notendur sem eru bæði leikmenn og í mótsstjórn geta skipt milli leikmannasýnar og mótsstjórnarsýnar svo viðmótið sýni betur það sem þeir eru að vinna með hverju sinni.
Hvað er Hugmyndatorg Golfgáttar?
Hugmyndatorg er leið fyrir leikmenn og mótsstjórn til að senda inn hugmyndir að nýrri virkni eða betrumbótum. Aðrir notendur geta kosið um hugmyndir og Golfgátt getur merkt stöðu þeirra, til dæmis í skoðun, á döfinni eða komið.
Þetta hjálpar okkur að þróa Golfgátt í takt við það sem golfhóparnir þurfa í raun.
Við notum Golf GameBook í dag – hvað bætir Golfgátt við fyrir golfhópa?
Golf GameBook er öflugt golfapp fyrir skorkort, live-stöðu, GPS og almenna golfupplifun. Golfgátt er hins vegar byggð sérstaklega fyrir íslenska golfhópa sem þurfa að halda utan um meira en einn hring.
Golfgátt heldur utan um hópinn og allt tímabilið: leikmenn, mótaskrá, mætingarbeiðnir, live-link fyrir þá sem komast ekki, leikdagsspjall, rástímaholl, skorkort, holukeppni, safnmót, punktakeppnir, gesti, ritaraskráningu, ókláruð skorkort og stöður.
Golfgátt hentar sérstaklega vel fyrir hópa sem spila reglulega, eru með eigin reglur, halda mótaraðir eða holukeppni og vilja minnka handavinnu, Excel-skjöl og skilaboðaflækjur.
Kemur Golfgátt í stað Golf GameBook?
Fyrir mörg hópamót getur Golfgátt verið aðalkerfi hópsins: mótsstjórn stofnar mót, raðar í holl, sendir skorkort, fylgist með stöðu og heldur utan um úrslit yfir tímabilið.
Leikmenn geta samt áfram notað önnur golföpp fyrir persónulega tölfræði, GPS eða eigin æfingahringi ef þeir vilja. Munurinn er að opinbera mótastaða hópsins, skorkortin og utanumhaldið eru þá í Golfgátt.
Þurfa allir að sækja app til að nota Golfgátt?
Nei. Golfgátt keyrir í vafra og skorkort eru send með öruggum tengli í tölvupósti eða skilaboðum. Leikmaður opnar skorkortið í símanum, skráir skor og getur séð live-stöðu án þess að þurfa sérstakt app.
Þetta hentar sérstaklega vel fyrir hópa þar sem leikmenn eru misjafnlega tæknivanir. Minna vesen, færri lykilorð og fljótlegra að komast í leik.
Hvað gerir Golfgátt sérstaklega vel fyrir holukeppni og safnmót?
Golfgátt getur haldið utan um holukeppni, riðla, raunverulega röðun í holl, skorkort, úrslit og stöðu í riðlum. Samhliða því getur hópurinn keyrt safnmót þar sem punktar úr hringjum telja yfir tímabilið, til dæmis bestu 6 hringirnir.
Þetta þýðir að sami spiladagur getur bæði verið holukeppnisleikur og hluti af safnmóti. Ef leikmaður spilar stakan safnhring, gestur kemur inn í holl eða mótsstjórn breytir röðun á leikdegi, þá fylgir Golfgátt raunveruleikanum.
Hvernig hjálpar Golfgátt mótsstjórn eftir leikdag?
Mótsstjórn sér hverjir hafa skilað skorkorti, hverjir bíða staðfestingar og hverjir eiga eftir að klára. Hægt er að senda ítrekun á ókláruð skorkort og læsa liðnum umferðum þannig að gamla áætlunin ruglist ekki við það sem var raunverulega spilað.
Geta gestir spilað með án þess að telja í mótið?
Já. Gestaspilari getur fengið eigið skorkort og spilað með hollinu án þess að telja í holukeppni, safnmót eða heildarstöðu hópsins.
Gestur fær skýran póst um að hann sé gestaspilari og getur skoðað sitt skorkort eftir hring. Þetta gerir hópnum auðvelt að bjóða gestum með án þess að rugla stöður eða mótakerfi.
Hvað kostar Golfgátt?
Golfhópur kostar 29.900 kr. á ári og Golfhópur Plús kostar 49.900 kr. á ári. Fyrirtækjamót / boðsmót og Golfvöllur / Golfklúbbur eru sérsniðin eftir tilboði.
Tilbúin að prófa Golfgátt?
Setjum upp kynningu, förum yfir ykkar hóp eða fyrirtækjamót og finnum rétta notkun: mót, mótaraðir, bókanir, keppnisholl, ritaraskráningu, live skorkort, merkt fyrirtækjamót, útsláttarholukeppni, Ryder-snið eða Golfgátt Torg.
Golfgátt biður aldrei um lykilorð eða greiðsluupplýsingar í fyrirspurnarformi. Persónuvernd · Skilmálar