Skip to content
  • Golfgátt
  • Um Golfgátt
  • Golfgátt Fyrirtæki
  • Golfgátt Travel
  • Golfgátt ferðir
  • Golfgátt Klúbbar
  • Golfgátt
  • Um Golfgátt
  • Golfgátt Fyrirtæki
  • Golfgátt Travel
  • Golfgátt ferðir
  • Golfgátt Klúbbar

Persónuverndarstefna

Persónuvernd

Persónuverndarstefna Golfgáttar

Golfgátt vinnur aðeins með þær upplýsingar sem þarf til að reka Golfgátt Play, golfhópa, mót, golfferðir, skorkort, skor og samskipti tengd þjónustunni.

Hvaða upplýsingar eru unnar?

Við stofnun Golfgáttar Play-aðgangs geta verið unnar upplýsingar eins og nafn, netfang, notandaaðgangur, Golfgáttarvinir, vellir, teigar, Play-leikir, skorkort og skor. Gestur getur fengið skorkortalink án þess að stofna aðgang.

Í fyrirspurnar- og pöntunarformi geta borist nafn, netfang, sími, nafn hóps, fyrirtækis eða golfklúbbs, áætlaður fjöldi leikmanna, valinn pakki, kennitala greiðanda/reikningsaðila og skilaboð.

Þegar Golfgátt er notuð fyrir golfhópa eða mót geta verið unnar upplýsingar um leikmenn, netfang, síma ef við á, forgjöf, teiga, mætingu, holl, skorkort, skor, úrslit, skilaboð tengd leikdegi og aðrar upplýsingar sem mótsstjórn skráir í tengslum við mótið.

Tilgangur vinnslu

Upplýsingarnar eru notaðar til að stofna og tengja Play-leiki, senda skorkortalinka, svara fyrirspurnum, stofna og þjónusta golfhópa, halda utan um mót, senda mætingarbeiðnir, reikna stöðu og úrslit, veita notendum aðgang að eigin leikjum og sinna þjónustu og reikningsgerð.

Hver skráir upplýsingar?

Ábyrgðarmaður hóps, mótsstjórn, fyrirtæki eða samstarfsaðili getur skráð leikmenn í Golfgátt þegar það er nauðsynlegt til að halda utan um mót eða leikdag. Leikmenn geta einnig sent inn upplýsingar sjálfir í gegnum Golfgátt, til dæmis mætingu, skor eða leiðrétta forgjöf.

Lögmætur grundvöllur

Vinnslan byggir eftir atvikum á beiðni um þjónustu, stofnun notandaaðgangs, samningi um notkun Golfgáttar, lögmætum hagsmunum við að halda utan um golfleiki og mót eða samþykki þegar það á sérstaklega við.

Upplýsingar um nýjungar

Play-notandi getur valið sérstaklega hvort Golfgátt megi senda honum upplýsingar um nýjungar og þróun þjónustunnar. Það val hefur ekki áhrif á nauðsynlega þjónustupósta, til dæmis skorkortalinka eða skilaboð sem tengjast leik sem notandinn tekur þátt í.

Það sem Golfgátt biður ekki um

Golfgátt biður ekki um lykilorð, greiðsluupplýsingar eða óþarfar viðkvæmar persónuupplýsingar í fyrirspurnarformi eða almennum kynningartölvupóstum. Kennitala er aðeins notuð þegar hún er nauðsynleg fyrir reikningsgerð.

Varðveisla og aðgangur

Gögn eru varðveitt á meðan þau nýtast við þjónustu, mótahald, reikningsgerð, þjónustusögu eða lögmæta eftirfylgni. Hægt er að óska eftir upplýsingum um skráningu, leiðréttingu eða eyðingu með því að hafa samband.

Þriðju aðilar

Golfgátt selur ekki persónuupplýsingar. Upplýsingar eru aðeins notaðar innan Golfgáttar og hjá þjónustuaðilum sem þarf til að reka kerfið, senda tölvupósta, vista gögn og þjónusta notendur.

Tengd skjöl

Skilmálar og skilyrði · Vinnsluskilmálar fyrir hópa

Tengiliður

Netfang: golf@golfgatt.is

Þessi texti er almenn stefna fyrir Golfgátt og kemur ekki í stað sértækrar lögfræðiráðgjafar ef sérstakar kröfur eiga við.

Golfgátt Travel Preview

Ferðin er bókuð hjá ferðaskrifstofu. Golfgátt heldur utan um golfið í ferðinni.

Skoða ferð

Fylgstu með

Skráðu þig á póstlistann og fáðu upplýsingar um nýjungar og tilboð

© Golfgátt 2026 - rekið af Golfgátt ehf

Íslensk hugbúnaðarlausn
Unnið með íslenskum golfdómurum.

  • Persónuverndarstefna
  • Skilmálar og skilyrði
  • Persónuverndarstefna
  • Skilmálar og skilyrði
Facebook Instagram