Golfgátt Klúbbar

Dómaragátt fyrir dómgæslu á vellinum.

Vinnusvæði fyrir yfirdómara, mótsstjórn og dómara sem þurfa að skrá atvik, tímamælingar, leikhraða og vaktaskil á einum stað.

Dómaragátt er í virkri þróun og er mótuð út frá raunverulegri dómaravinnu.

Grafarholtsvöllur í Reykjavík
Grafarholtsvöllur í Reykjavík Mynd: Golfklúbbur Reykjavíkur
Fyrir golfklúbba

Dómgæsla sem byggist upp á meðan mótið fer fram.

Dómarinn skráir það sem gerist á vaktinni. Yfirdómari og mótsstjórn fá sameiginlegt yfirlit í stað handskrifaðra minnispunkta og dreifðra skilaboða.

01 · MÓTSSTJÓRN

Yfirdómari og mótsstjórn

Stofna mót, setja inn mótagögn og staðarreglur, tengja keppendalista og úthluta dómurum á vaktir.

02 · Á VELLINUM

Dómari á vakt

Opnar vaktina í síma, skráir símtöl og úrskurði, notar tímamæli og fylgist með leikhraða.

03 · EFTIR VAKT

Skýrsla í lok dags

Atvik, yfirferðir, tímamælingar og vaktarsamantekt verða að einni skýrri dómaraskýrslu.

Dómaragátt í raun

Helstu verkfæri dómarans á einum skjá.

Skjámyndin er byggð á núverandi viðmóti Golfgátt Core. Öll nöfn og mótagögn í sýnidæminu eru tilbúin.

Sýnidæmi af dómaravakt í Golfgátt Dómaragátt
Dómaravakt. Nýtt atvik, ráðgjöf við niðurstöðu, dómaraklukka, leikhraði og yfirferð yfirdómara.
Vaktin í fjórum skrefum

Einfalt vinnuflæði þegar tíminn skiptir máli.

Dómarinn þarf ekki að fletta milli kerfa. Vakt, keppendur, staðarreglur, atvik og tímamælingar fylgja sama mótinu.

  1. 01

    Opna vakt

    Dómari fær magic link eða opnar vaktina eftir innskráningu.

  2. 02

    Skrá atvik

    Leita að leikmanni, skrá lýsingu, staðreyndir, úrskurð og reglutilvísun.

  3. 03

    Mæla og fylgjast með

    Dómaraklukka og leikhraðayfirlit styðja vinnuna úti á velli.

  4. 04

    Skila vakt

    Vaktarsamantekt og atvik verða að skýrslu sem yfirdómari yfirfer.

Leikhraði og úrskurðir

Kerfið hjálpar dómara að halda utan um staðreyndirnar.

Dómaragátt er hjálpartæki. Hún getur lagt til reglutilvísun og atriði sem þarf að staðfesta, en dómari tekur alltaf endanlega ákvörðun.

Í prufuþróun. Lausnin er ætluð klúbbum sem vilja taka þátt í að móta vinnuflæðið með Golfgátt.
01

Keppendalisti og leit. Finndu leikmann með nafni og sjáðu rástíma og holl.

02

Ráðgjöf við niðurstöðu. Reglutilvísun og staðreyndir sem dómari þarf að staðfesta.

03

Dómaraklukka. Höggtími, boltaleit og aðrar mælingar vistast með vaktinni.

04

Leikhraði. Berðu tímaplan saman við staðfesta raunstöðu holla á vellinum.

05

Yfirferð yfirdómara. Merktu mál sem þarf að skoða áður en niðurstaða er staðfest.

06

Vaktaskil og skýrsla. Næsti dómari og mótsstjórn sjá hvað hefur gerst.

Golfgátt Klúbbar

Viljið þið prófa Dómaragátt í næsta móti?

Förum yfir dómaravaktir, keppendalista, staðarreglur, leikhraða, tímamælingar og dómaraskýrslu með ykkar klúbbi.

Golfgátt biður aldrei um lykilorð eða greiðsluupplýsingar í fyrirspurnarformi. Persónuvernd · Skilmálar