Golfgátt Travel Partner

Fyrir ferðaskrifstofur og skipuleggjendur golfferða.

Þið seljið og bókið ferðina. Golfgátt kynnir ferðina, tengir hana við vellina og getur bætt lokuðu Travel-svæði við pakkann fyrir hópinn.

Ferðahópurinn fær skorkort, lið, keppnir, ferðatölfræði og lokauppgjör en bókun, greiðsla, flug og gisting eru áfram hjá ferðaskrifstofunni.

✈️

Skýr verkaskipting

Ferðaskrifstofan sér um ferðina. Golfgátt sér um golfið, keppnirnar og upplifun hópsins á staðnum.

📱

Meira virði í ferðapakkanum

Travel-aðgangur getur fylgt hópferðinni með skorkortum, live-stöðu, Ryder og lokauppgjöri.

🔗

Ferðir tengdar völlum

Ferðatilboð birtast með vörumerki samstarfsaðila og tengjast viðeigandi völlum í Vallarbanka.

Travel Partner

Ferðaskrifstofur og golfferðir í skýru samstarfssvæði

Veldu samstarfsaðila til að sjá þær ferðir sem eru skráðar hjá honum og hvaða Vallarbanka-vellir tengjast ferðunum.

Ferðir í boði

Ferðir tengdar völlum í Vallarbanka

Hver ferð er tengd við einn eða fleiri golfvelli í Vallarbanka. Þannig getur golfari skoðað völl og séð hvaða ferðir tengjast honum.

Aroeira er einn vinsælasti golfáfangastaður Portúgals, aðeins 25 mínútum frá miðborg Lossabon og í nágreinni við fallegar strendur Costa da Caparica.

Travel Partner TA-Sport Travel
⛳ Innifaldir golfvellir
PGA Aroeira NO.1 PGA Aroeira NO 2

Club de golf Barcelona Einn rótgrónasti og þekktasti golfvöllur Katalóníu héraðsins á Spáni. Margar dagsetningar í boði og golfskóli í boði á völdum dagsetningum. Verð frá kr. 289.800 á mann í tvíbýli Haust 2026 2-9.september – Kr.299.800 – single Kr. 345,800 18-25.september – Sérðverð Kr.289.800 – Single Kr. 335.800 3-10.október – Kr.299.800 – single Kr. 345.800   Frekari upplýsingar og verðtilboð í síma 552-2018 eða info@tasport.is

Travel Partner TA-Sport Travel
⛳ Innifaldir golfvellir
Club de Golf Barcelona – Masia Bach Club de Golf Barcelona — San Esteve

Fallegt golfsvæði staðsett í stórkostlegu umhverfi með hágæða 18 holu golfvelli um 50 mínútum frá flugvellinum í Gdansk. Völlurinn sem er par 72, krefjandi en ekki sérstaklega langur eða 5623 metrar af gulum. Högg lengri kylfingar geta leikið af hvítum teig sem er 6115 metrar.  Eitt af aðalsmerkjum Sierra Golf er hversu vel völlurinn og allt umhverfið er hirt og snyrtilegt. Gróður er einstaklega fallegur bæði á vori sem og hausti. Á svæðinu er frábært æfingarsvæði, 9 holu æfingarvöllur par 3, driving range með 26 stæðum sem eru yfirbyggð og allt sem þú þarft til að bæta stutta spilið.

Travel Partner TA-Sport Travel
⛳ Innifaldir golfvellir
Sierra Golf Resort