Íslenskt kerfi fyrir íslenskt golf

Golfgátt heldur utan um golfið.

Frá stökum leik með vinum í Golfgátt Play yfir í mótaraðir, holukeppni, mætingu og heilt tímabil í Golfgátt Pro.

Engin uppsetning fyrir Play. Engin áskrift. Pro er 30 daga frítt í prufu fyrir nýja golfhópa.

Korpúlfsstaðavöllur í Grafarvogi
Korpúlfsstaðavöllur í Grafarvogi Mynd: Golfklúbbur Reykjavíkur
Af hverju Golfgátt?

Minni handavinna. Meiri tími fyrir golfið.

Golfgátt varð til vegna þess að utanumhald golfhópa dreifðist á Excel-skjöl, tölvupósta, Messenger-þræði og pappírsskorkort. Þegar leikjum fjölgaði varð utanumhaldið fljótt stærra en leikurinn sjálfur.

Markmiðið er einfalt: leikmenn eiga að geta opnað rétt skorkort í símanum og mótsstjórn á að sjá mætingu, holl, skor og stöðu án þess að endurskrá sömu upplýsingarnar aftur og aftur.

Fjórar skýrar leiðir

Byrjaðu þar sem þú ert.

Golfgátt er ekki ein stór lausn sem allir þurfa að kaupa. Einstaklingur getur byrjað frítt í Play og stærri hópar, fyrirtæki og ferðaaðilar velja þá leið sem hentar.

PLAY · FRÍTT

Stakir leikir með vinum

Veldu völl og teiga, bættu við vinum eða gestum og sendu skorkortalinka.

Stofna Play-aðgang
PRO · 49.900 KR./ÁR

Golfhópurinn og tímabilið

Mótaraðir, holukeppni, mæting, holl, bókanir, live-staða og tölfræði.

Prófa Pro í 30 daga
FYRIRTÆKI

Faglegri mótsdagur

Þátttakendur, ritarar, skorkort, live og TV leaderboard með sérmerkingu.

Skoða Golfgátt Fyrirtæki
TRAVEL

Golfferðin á einum stað

Ferðahópur, golfdagar, vellir, Ryder, dagakeppnir og samanlögð staða.

Skoða Golfgátt Travel

Fyrir golfklúbba og stærri uppsetningar er einnig í þróun Golfgátt Klúbbar og Dómaragátt.

Svona virkar Golfgátt

Frá hugmynd að leik yfir í tilbúin úrslit.

Sama grunnflæði virkar hvort sem um er að ræða vinaholl, vikulegan golfhóp eða stórt fyrirtækjamót.

  1. 01

    Stofna og skipuleggja

    Veldu dag, völl, teiga, leikmenn og keppnisform.

  2. 02

    Senda rétt skorkort

    Leikmaður eða ritari fær öruggan hlekk beint í símann.

  3. 03

    Fylgjast með leiknum

    Högg, punktar, holukeppni og live-staða uppfærast jafnóðum.

  4. 04

    Klára og halda utan um

    Úrslit, aukaverðlaun og tölfræði liggja fyrir án endurskráningar.

Golfgátt í raun

Viðmótið sem leikmenn og mótsstjórn nota.

Engar tilbúnar app-myndir. Hér er útlitið byggt beint á núverandi Golfgátt Core: leikstofnun, símaskorkort og TV leaderboard.

Golfgátt Play - stofna leik og velja Golfgáttarvini
Stofna leik í Play. Völlur, teigar, leikform og Golfgáttarvinir á einum skjá.
Golfgátt Play skorkort í síma
Skorkort í síma. Högg, pútt, punktar og live-staða.
Golfgátt TV leaderboard fyrir fyrirtækjamót
TV leaderboard. Heildarstaða, flokkar og aukaverðlaun uppfærast á mótsdegi.
Play eða Pro?

Play er fyrir leikinn í dag. Pro er fyrir hópinn og tímabilið.

GOLFGÁTT PLAY

Þegar vinir ákveða að spila

  • Stakir leikir
  • 2–4 leikmenn
  • Höggleikur, punktakeppni og holukeppni
  • Skorkort og live-staða í síma
  • Frítt
Prófa Play frítt
GOLFGÁTT PRO

Þegar hópurinn spilar aftur og aftur

  • Eigið svæði fyrir golfhópinn
  • Mót og mótaraðir yfir tímabilið
  • Mæting, rástímaholl og keppnisholl
  • Holukeppni, riðlar, Ryder og safnmót
  • 49.900 kr. á ári
Prófa Pro í 30 daga
Það sem skiptir máli

Golfgátt á að finnast einföld í notkun.

Tæknin má vera flókin undir yfirborðinu. Leikmaðurinn á samt bara að sjá rétt skorkort og mótsstjórn á að sjá næsta skref.

01

Minna Excel. Mæting, holl, skor og staða vinna saman.

02

Rétt skorkort í síma. Engin leit að réttu móti eða umferð.

03

Raunveruleg holl. Bókunarholl og keppnisholl eru ekki rugluð saman.

04

Live án aukavinnu. Staðan byggist á skráningunni á vellinum.

05

Forgjöf og teigar. CR, Slope, par og vallarforgjöf reiknast eftir réttum teig.

06

Byggt á raunverulegu golfi. Lausnirnar þróast út frá notkun á íslenskum völlum og mótum.

Algengar spurningar

Það helsta áður en þú byrjar.

Frekari upplýsingar um verð og sérlausnir eru á forsíðunni.

Sjá verð og vöruleiðir
Hvað er Golfgátt Play?
Frí leið fyrir staka leiki með 2–4 kylfingum. Þú velur völl, teiga og leikform, sendir skorkortalinka og fylgist með stöðunni í símanum.
Hver er munurinn á Play og Pro?
Play er fyrir leikinn í dag. Pro er fyrir golfhópinn, mótaraðirnar, mætinguna, holukeppnina og heildarstöðuna yfir tímabilið.
Þarf að sækja app?
Nei. Golfgátt opnast í vafra og má vista sem shortcut á heimaskjá símans. Skorkort opnast með öruggum hlekk.
Geta gestir skráð skor án aðgangs?
Já. Gestur getur fengið skorkortshlekk og skráð skor án þess að stofna aðgang. Play-aðgangur gerir honum síðan kleift að halda utan um eigin leiki.
Hentar Golfgátt fyrirtækjamótum?
Já. Golfgátt Fyrirtæki styður þátttakendalista, holl, ritara, skorkort í síma, live-stöðu, TV leaderboard, sérmerkingu og aukaverðlaun.
Hvað kostar Golfgátt?
Golfgátt Play er frítt. Golfgátt Pro kostar 49.900 kr. á ári. Fyrirtæki og Travel eru verðlögð eftir umfangi.
Næsti hringur

Prófaðu Golfgátt þar sem hún á heima — á vellinum.

Stofnaðu Play-aðgang frítt eða fáðu 30 daga Pro-prufu fyrir golfhópinn.

Mynd: Golfklúbbur Reykjavíkur

Golfgátt biður aldrei um lykilorð eða greiðsluupplýsingar í fyrirspurnarformi. Persónuvernd · Skilmálar